Wednesday, November 26, 2008

Skilaboð frá veislustjóra

"ég hvet eindregið alla lesendur þessa bloggs til þess að senda mér myndir og grófar gamansögur af Geir á netfangið fjolae@hi.is"

Þess má geta að staður og stund er óstaðfest enn, en milli jóla og nýárs og miðbær Reykjavíkur væri gott gisk!

Saturday, November 22, 2008

Ekki-fréttir

Þótt ekkert sé að frétta þá er sennilega ágætt að smella inn smá frétta-bloggi, þótt ekki sé nema fyrir sjálfan mig.

Seinustu tveir mánuðir hafa aðallega verið vinna með smá djammi. J-dagur með vinnunni, Slipknot-tónleikar í seinustu viku og Slayer-tónleikar í gær, og einhverjir hittingar þess á milli (hittingar af öllu tagi satt að segja). Engar utanlandsferðir sem betur fer, en það breytist á mánudaginn (2ja daga vinnuferð til Parísar). Það er nú það heila.

Jóla-Íslandsferð nálgast, byrjar sennilega 20. eða 21. desember og planið er að vera alveg til 11. janúar.

Afmælispartý? Það er í vinnslu. Ekki satt, fröken veislustjóri?

Nú er hins vegar málið að setja á sig einhver föt og kíkja út í öl eða tvo.

Passið upp á ykkur, og þá sérstaklega á meðan íslenska krónan aðlagast margföldun á magni sínu seinustu ár!

Monday, November 17, 2008

Fyrir Soffíu 3



Annar titill færslu gæti verið: "Fyrir 20 kg síðan!" Læt núverandi titil samt standa.

Monday, November 10, 2008