Friday, March 09, 2007

Brósi í Baunaveldi

Þá er litli bróðir búinn að gista eina nótt í Kaupmannahöfn og ljómandi góð stemming í pilti. Ég þarf að slátra nokkrum tímum í vinnunni en svo er rokið í bæinn og tekinn túristarúntur. Er hafmeyjustyttan í eðlilegu ástandi um þessar mundir?

Er voðalega mikið inn að vera "hægri-grænn"? Ég tek bara undir með Vefþjóðviljanum og kalla hugtakið "furðuverk".

Alltaf gaman að fá tækifæri til að nota pV/T=fasti sambandið.

Ef einhver veit eða heyrir eitthvað um lausa íbúð til 2-3 herbergja leigu í sumar, helst miðsvæðis í Kaupmannahöfn, má hinn sami hafa samband. Nei, íbúðin er ekki fyrir mig.

Fátt eins hressandi og að kúka í stereó, og vita að lyktin í loftinu kom úr tveimur rassgötum hið minnsta.

Lýsi hér með yfir að núna er komin helgi!

2 comments:

Anonymous said...

Sæll Geir.

Rakst á þessa síðu og þ.a.l. á skilaboðin um íbúð í sumar hér í Kaupinháfn. Ég þykist vita um íbúð á Oehlenschlægersgade 14 3.sal, 1663 CPH. Leigði hana sjálfur sl. sumar á 5.000 DKK með öllu. 80fm, einstaklega týpísk dönsk íbúð.

Kontakaðili: Mads Christoffersen. E-mail: mlc@mail.dk, sími: 33236009.

kv,
Guðmundur B.

Geir said...

Þakkir!