Friday, September 09, 2005

Fløskudagshugvekjan

Þá er kominn föstudagur. Það er gott. Ég mæti ólöglega en boðinn á aðalfund félags-íslenskra-stúdenta-við-danmarks-tekniske-universitet á eftir, drekk bjór þess ágæta félags og vonandi verður bærinn málaður hlandgulur þegar líður á. Enn ágætt.

Ekki sinnti Fréttablaðið mér í dag. Kannski á morgun? Kannski tónninn í því sem ég skrifaði sé ekki sá geðþekkasti en þannig verður maður jú stundum að vera inn á milli.

Hver eftirfarandi athafna eru stærstu svikin við atvinnuveitanda sinn:
  1. Tala lengi og oft í símann við einhverja sem koma vinnunni ekkert við?
  2. Ganga um og hefja óvinnutengdar samræður við alla sem eru þannig upplagðir?
  3. Reykja í 5-10 mínútur á hverjum klukkutíma án þess að það komi niður á öðrum almennum pásum sem fólk tekur sér?
  4. Mæta í seinna fallinu og fara í fyrra fallinu á hverjum vinnudegi?
  5. Blogga?
Ég er auðvitað ekki hlutlaus í þessu máli og geri mig sekan um seinasta liðinn, og kannski lið 3 þegar tekur að líða á seinnipart dags, og finnst ég auðvitað ekki vera svíkjast undan, og þaðan af síður meira en gengur og gerist. Rétt mat? Jæja, skiptir engu.

Helgin byrjar eftir 2 klst og áfram með smjörið þangað til!

No comments: